Ekki það skemtilegasta sem ég geri,en maður lætur sig nú hafa það samt,krabbameinsskoðun.tók smá tíma og allt gekk vel.mætti svo í vinnu.og þar sem ég sat og var að pakka smá hölum.var pikkað í bakið á mér.lítil kona dökk og brosmild vildi spjalla.
þú búin að fara í svona skoðun?.
já en þú '?
ég fara á morgun.ég búin að fara einu sinni í reykjavík,ekki gott,læknir ekki gott,hann meiða mig,ég mikið gráta ,ég lemja hann og spark í hann,systir minn segja læknir þú ekki meiða systir minn.
þar sem hún hafði nú náð allri minni athygli spurði ég.
hvað var svona vont?
jú hann nota stóra skópla,mikið meiða mig.
ég var farin að sjá fyrir mér lækni í hvítum slopp með snjóskóplu.
stór slasaðann.
ég sagði þú verður bara að láta vita að þér þyki þetta ekki gott.
já ég bara myndir og svo má læknir bara horfa.
dagin eftir var sú brosmilda mætt.brosandi,allt gekk vel.hún hafði látið vita og sagði
læknir góður ekki meiða mig,hann nota svona gott boddý krem...mikið gott(sleipi efni)
það voru ekki allar sem komu brosandi til baka,sumar sögði ...ég var ekki kona heldur var þetta eins og meðferð á belju.
og ég misti út úr mér ....varstu nokkuð að yxna.

verð að passa mig næst muna það bless Arný.